Skattur og bókhald

Skattur og bókhald Við bjóðum upp á alla almenna bókhaldsþjónustu, ráðgjöf, uppgjör, skattskil og margt fleira. Opnunartími 9:00 - 17:00

16/02/2026

Skattur & bókhald óskar eftir bókurum sem vilja vera hluti af faglegu en um leið persónulegu og skemmtilegu vinnuumhverfi. Skattur & bókhald býður upp á alla almenna bókhaldsþjónustu, ráðgjöf, uppgjör, skattskil og fleira fyrir einstaklinga og fyrirtæki af öllum stærðum o...

31/12/2025

Við óskum öllum okkar viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum viðskiptin á liðnu ári.

29/12/2025

Frítekjumark er 300.000 kr. samtals á manni, 600.000 kr. fyrir hjón og á annars vegar við vaxtatekjur og hins vegar tekjur af hlutabréfaeign í formi arðs og söluhagnaðar í félögum skráðum á skipulegum verðbréfamarkaði eða markaðstorgi fjármálagerninga.

09/12/2025

Gamlársdagur ekki lengur bankadagur

Samkvæmt ákvörðun Seðlabankans verður 31. desember ekki lengur bankadagur. Þetta hefur áhrif á fyrirtæki, stofnanir og aðra, sem gefa út kröfur, greiða laun og framkvæma aðrar greiðslur, sem hér segir:
• Þær kröfur, sem eiga að greiðast á árinu 2025, þurfa að hafa eindaga í síðasta lagi þriðjudaginn 30. desember.
• Klára þarf allar greiðslur, sem tengjast árinu 2025, fyrir lok dags 30. desember.
• Stórgreiðslukerfið verður lokað þann 31. desember.
Þar sem 31. desember verður ekki bankadagur munu allar greiðslur þann dag bókast á 2. janúar 2026.

Nánari upplýsingar má finna í tilkynningu Seðlabanka Íslands:
Reglur um breytingu á reglum um millibankagreiðslukerfi Seðlabanka Íslands nr. 1030/2020.

Tekið úr auglýsingu Arion banka

Við hjá Skatt og bókhald fögnum 35 ára afmæli í dag 1.des. Því ber að fagna og voru keyptar tertur í tilefni dagsins bæð...
01/12/2025

Við hjá Skatt og bókhald fögnum 35 ára afmæli í dag 1.des. Því ber að fagna og voru keyptar tertur í tilefni dagsins bæði hér á Höfðabakkanum og í Borgarnesi.
Til hamingju með daginn 🎊😍 viðskiptavinir velkomnir

25/10/2025

Endurgreiðsla virðisaukaskatts vegna íbúðarhúsnæðis.

Eigendur íbúðarhúsnæðis geta sótt um 35% endurgreiðslu af greiddum virðisaukaskatti af vinnu á verkstað, vegna nýbygginga, endurbóta og viðhalds.

Endurgreiðslan nær til vinnu á byggingarstað íbúðarhúsnæðis vegna:

Nýbygginga
Endurbóta
Viðhalds

Hægt er að sækja um endurgreiðslur í s*x ár talið frá því að endurgreiðsluréttur stofnaðist.

💜 Skattur & bókhald tekur þátt í kvennaverkfallinu 2025 💜Í dag höfum við hjá Skatt & bókhald ákveðið að veita öllum konu...
24/10/2025

💜 Skattur & bókhald tekur þátt í kvennaverkfallinu 2025 💜
Í dag höfum við hjá Skatt & bókhald ákveðið að veita öllum konum hjá okkur tækifæri til að taka þátt í kvennaverkfallinu og sýna samstöðu í baráttunni fyrir jafnrétti.
Við trúum því að jafnrétti sé ekki aðeins grundvallarréttur heldur forsenda heilbrigðs og réttláts samfélags og því er mikilvægt að við stöndum saman, bæði sem einstaklingar og fyrirtæki.

🎀 Bleiki dagurinn 🎀Við hjá Skatt & bókhald tókum virkan þátt í Bleikum október og héldum Bleika daginn hátíðlegan í gær ...
23/10/2025

🎀 Bleiki dagurinn 🎀
Við hjá Skatt & bókhald tókum virkan þátt í Bleikum október og héldum Bleika daginn hátíðlegan í gær 💗
Dagurinn var frábært og allir mættu í einhverju bleiku. Og eins og það sé ekki nóg, þá er ostóber líka í fullum gangi 🧀 og vondu nammi keppni sem sló í gegn 😅.
Það er alltaf gaman þegar við getum sameinað skemmtun, samstöðu og góðverk 💗

Við óskum öllum okkar viðskiptavinum gleðilegs árs með þökk fyrir viðskiptin á liðnu ári.Starfsfólk Skatts og bókhalds
04/01/2025

Við óskum öllum okkar viðskiptavinum gleðilegs árs með þökk fyrir viðskiptin á liðnu ári.

Starfsfólk Skatts og bókhalds

Address

Höfðabakki 9 B
Reykjavík
110

Opening Hours

Monday 08:00 - 17:00
Tuesday 08:00 - 17:00
Wednesday 08:00 - 17:00
Thursday 08:00 - 17:00
Friday 08:00 - 17:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Skattur og bókhald posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share