Ungir fjárfestar

Ungir fjárfestar Tilgangur félagsins er að vera vettvangur fyrir faglega umræðu milli félagsmanna um fjármál, fjárfestingar, sparnað og verðbréfamarkaði.

Félagið Ungir fjárfestar var stofnað í upphafi árs 2014. Tilgangur félagsins er að:
- Skapa vettvang fyrir faglega umræðu og tengsl milli félagsmanna
- Vekja áhuga félagsmanna og ungs fólks á fjármálum, fjárfestingum, sparnaði og verðbréfamarkaði

Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að:
- Halda reglulega umræðu- og fræðslufundi um fjármál, fjárfestingar, sparnað og verðbréfamarkað

Takk kærlega fyrir komuna á viðburðinn okkar í samstarfi við Seðlabanka Íslands!💫Við fengum frábæra innsýn í húsnæðismar...
15/11/2025

Takk kærlega fyrir komuna á viðburðinn okkar í samstarfi við Seðlabanka Íslands!💫
Við fengum frábæra innsýn í húsnæðismarkaðinn og hlutverk þjóðhagsvarúðartækja í fjármálastöðugleika. Kærar þakkir til Seðlabankans fyrir að taka á móti okkur!🤝🏼

Við hlökkum til að sjá ykkur á eftir í Seðlabanka Íslands!Farið verður yfir húsnæðismarkaðinn í sögulegu samhengi, þýðin...
06/11/2025

Við hlökkum til að sjá ykkur á eftir í Seðlabanka Íslands!
Farið verður yfir húsnæðismarkaðinn í sögulegu samhengi, þýðingu eignamarkaða og skuldsetningar einkageirans á fyrir fjármálastöðugleika og markmiðið með beitingu þjóðhagsvarúðartækja Seðlabanka Íslands.

🎉Viðburðurinn verður haldinn kl 17:00 í höfuðstöðvum Seðlabankans á Kalkofnsvegi 1. Gangið inn um aðalinngang hjá Arnarhóli.

Öll velkomin!

👉🏼Skráðu þig hér:
https://forms.gle/MtW1SQkG9XKzNYTa9

Aðalfundur Ungra Fjárfesta fór fram síðasta miðvikudag og var ný stjórn kosin fyrir starfsárið 2025–2026. Við hlökkum mi...
23/08/2025

Aðalfundur Ungra Fjárfesta fór fram síðasta miðvikudag og var ný stjórn kosin fyrir starfsárið 2025–2026. Við hlökkum mikið til spennandi verkefna framundan!🚀

Steinar Björnsson – Formaður
Haukur Ingi S. Jónsson – Varaformaður
Magnús Orri Magnússon – Verkefnastjóri
Björgvin Freyr Larsson – Viðskiptastjóri
Silvía Rose Gunnarsdóttir – Fræðslustjóri
Rebekka Berta Hanson – Markaðsstjóri
Sólrún Guðmundsdóttir – Samskiptastjóri

🚀 Aðalfundur Ungra fjárfesta 2025 🚀Við bjóðum alla félagsmenn og áhugasama velkomna á aðalfundinn okkar 20. ágúst klukka...
14/08/2025

🚀 Aðalfundur Ungra fjárfesta 2025 🚀
Við bjóðum alla félagsmenn og áhugasama velkomna á aðalfundinn okkar 20. ágúst klukkan 17:30 í Seres setrinu hjá Háskólanum í Reykjavík (í Bragganum á Nauthóli).

Þetta er frábært tækifæri til að hitta aðra fjárfesta, taka þátt í stefnumótun félagsins og heyra um spennandi framtíðarverkefni.

Minnum á að umsóknarfrestur í stjórn er 17. ágúst. Við leitum að áhugasömum og drífandi einstaklingum til að taka sæti í stjórn, sendu umsókn á [email protected] til að bjóða þig fram.

Við sjáumst í Seres frumkvöðlasetrinu 20. ágúst!💥

Hefur þú á huga á að taka þátt í stjórn Ungra fjárfesta?Opið er fyrir umsóknir í framboð stjórn Ungra fjárfesta 2025-202...
07/08/2025

Hefur þú á huga á að taka þátt í stjórn Ungra fjárfesta?

Opið er fyrir umsóknir í framboð stjórn Ungra fjárfesta 2025-2026. Við hvetjum alla til að sækja um. Umsóknarfrestur er út 17. ágúst.

Áhugasamir eru beðnir að senda póst á [email protected] með nafni og upplýsingum um frambjóðanda, hámark 200 orð (t.d. nám og starfsreynsla).

Aðalfundur Ungra fjárfesta verður haldinn eftir umsóknarfrestinn, frekari upplýsingar verða birtar á næstunni. Hlökkum til að heyra frá ykkur!💥

Indó býður í heimsókn fimmtudaginn 13. febrúar kl 17 í höfuðstöðvum, Nóatúni 17 (3. hæð).Tryggvi, einn af stofnendum Ind...
11/02/2025

Indó býður í heimsókn fimmtudaginn 13. febrúar kl 17 í höfuðstöðvum, Nóatúni 17 (3. hæð).

Tryggvi, einn af stofnendum Indó verður með stofnenda-hugvekju og talar um helstu áskoranir Indó og hvernig það er að koma inn á íslenskan fjármálamarkað og keppa við hina bankana.
Þetta er kjörið tækifæri til að kynnast starfsmönnum og fyrirtækinu.

Aðeins 20 laus pláss! Með okkur verður Ökonómía.
Opið öllum!

Við hvetjum ykkur til að vera tímanlega svo við getum byrjað á slaginu 😁

Skráning: https://forms.gle/iuJQxUR2ASVrRcB19

Byrjum árið af krafti með Deloitte á fimmtudaginn, 16 janúar!🙌 Komið með Ungum Fjárfestum í heimsókn til Deloitte, með o...
14/01/2025

Byrjum árið af krafti með Deloitte á fimmtudaginn, 16 janúar!🙌
Komið með Ungum Fjárfestum í heimsókn til Deloitte, með okkur verða Ökonomia og Pragma!
Viðburðurinn er opinn öllum.

Dagskrá:
Kynning a starfsemi Deloitte -
Hvernig þjónusta Deloitte atvinnulífið? Hverjir vinna hjá Deloitte og hvaða bakgrunn hafa þeir?

Krasskúrs i kennitölum -
Hvernig á að verðmeta fyirtæki byggt á kennitölum? Farið yfir grunnatriði í virðismati með kennitölum sem er gagnlegt þegar komast þarf á niðurstöðu á skömmum tíma og getur nýst við greiningar á félögum á hlutabréfamarkaði.

Spurningar og svör -
Takifæri til að spyrja ráðgjafa Deloitte að þeim spurningum sem brenna á gestum. Til að svara verða sérfræðingar með ólíkan bakgrunn.

Léttar veitingar verða í boði.

Skráning: https://forms.gle/qULSEV7rsZwpFD6C7

Það er loksins komið að þessari veislu, Kauphöllin býður í heimsókn!Baldur Thorlacius, framkvæmdastjóri skráninga fer yf...
09/12/2024

Það er loksins komið að þessari veislu, Kauphöllin býður í heimsókn!
Baldur Thorlacius, framkvæmdastjóri skráninga fer yfir hlutabréfamarkaðinn á Íslandi, best practice á hlutabréfaviðskiptum og starfsemi Nasdaq Iceland.

Aðeins 30 laus pláss svo hafið hraðar hendur!
Fimmtudaginn 12. desember kl 17:00 – 19:00
Höfuðstöðvar Nasdaq Iceland, Laugavegur 182
Ókeypis inn á viðburðinn!

Skráning: https://forms.gle/6XoM5PdJWPMnicxeA
Hlökkum til að sjá þig!

Ert þú með viðskiptahugmynd eða langar að fræðast um frumkvöðlastarfsemi og nýsköpun? Í samstarfi við KLAK og Sprota ætl...
20/11/2024

Ert þú með viðskiptahugmynd eða langar að fræðast um frumkvöðlastarfsemi og nýsköpun?

Í samstarfi við KLAK og Sprota ætlum við að halda frumkvöðlakvöld næstkomandi sunnudag 24. nóvember kl 17:00 í Seres setrinu (Nauthólsvegur 100, í viðbyggingunni við Braggan í Nauthólsvík).

KLAK Icelandic Startups og stofnandi Pink Iceland koma með góð ráð um hvernig er hægt að taka skrefið frá hugmynd að veruleika.

Þið viljið ekki missa af þessu!

Það er ókeypis inn, hlökkum til að sjá ykkur!💙

Skráning: https://forms.office.com/r/SM1fMFaKb7

Á miðvikudaginn 23. október héldum við okkar fyrsta viðburð á nýju starfsári í höfuðstöðvum Arion banka. Á viðburðinum t...
25/10/2024

Á miðvikudaginn 23. október héldum við okkar fyrsta viðburð á nýju starfsári í höfuðstöðvum Arion banka.

Á viðburðinum töluðu Harpa Hjartardóttir og Róbert V Ásgeirsson, greinendur hjá Stefni, um starfsemi sjóðastýringar. Eva Rós Birgisdóttir, jr sjóðstjóri, kynnti eignastýringu hjá lífeyrissjóðum og hvernig hún er frábrugðin sjóðastýringu. Að lokum hélt Ellen Hine, hlutabréfamiðlari hjá Arion banka, erindi um starfsemi verðbréfamiðlunar.

Takk Arion banki fyrir okkur og takk allir fyrir komuna, við hlökkum mikið til að sjá ykkur á næsta viðburði!

-Dominika Ewa Ostaszewska, Steinar Björnsson, Silvía Rose Gunnarsdóttir, Rebekka Berta Hanson, Eiríkur Þór Björnsson

Verðbréfamiðlun 101Fyrsti viðburður Ungra Fjárfesta á nýju starfsári verður haldinn í samstarfi með Arion banka og Stefn...
19/10/2024

Verðbréfamiðlun 101

Fyrsti viðburður Ungra Fjárfesta á nýju starfsári verður haldinn í samstarfi með Arion banka og Stefni þar sem þau fara yfir starfsemi Stefnis, eignastýringu lífeyrissjóða og markaðsviðskipti.

Viðburðurinn verður haldinn næsta miðvikudag þann 23. október kl. 16:30 í Borgartúni 19, höfuðstöðvum Arion banka. ATH það eru einungis 40 pláss og það er ókeypis inn á viðburðinn.

Hlökkum til að sjá ykkur öll!

Skráning: https://forms.office.com/e/kcn2KcPWib

Kíktum í heimsókn til Nasdaq Iceland í gær🔔Spennandi samstarf framundan!🤝Dominika Ewa Ostaszewska, Steinar Björnsson, Si...
16/10/2024

Kíktum í heimsókn til Nasdaq Iceland í gær🔔

Spennandi samstarf framundan!🤝

Dominika Ewa Ostaszewska, Steinar Björnsson, Silvía Rose Gunnarsdóttir, Eiríkur Þór Björnsson, Rebekka Berta Hanson

Address

Menntavegur 1
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ungir fjárfestar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Ungir fjárfestar:

Share