INext

INext Þegar árangur skiptir máli. Mjög öflug bókhalds- og tölvuþjónusta sem byggir á áratuga reynslu auk margra ára háskólanáms. Guðmundur R. M.a.

Við höfum tekist á við ansi fjölbreytileg verkefni. er reglulegt bókhald, launaútreikningar, VSK-skil, staðgreiðsluskil, Allar skilagreinar til sjóða, Ársreikningar fyrir ehf, sf og einstaklinga, skráningar hlutafélaga, samskipti við launþega / verkalýðsfélög og auðvitað einka framtöl. En þar fyrir utan hef ég verið að stússa í tölvumálum og raunar markaðsmálum.

Spurt er:  Munu vextir lækka við inngöngu i ESB ?Stutta svarið Já.Langa svarið:  Seðlabankinn var að hækka vexti.  Við þ...
29/05/2026

Spurt er: Munu vextir lækka við inngöngu i ESB ?

Stutta svarið Já.

Langa svarið: Seðlabankinn var að hækka vexti. Við það hækkuðu allir vextir á Íslandi, nema verðtryggðir vextir (að hluta). Við inngöngu í ESB fengjum við Evru. Peninga sem hægt væri að nota alls staðar, án þessa að skipta :) Vextir Seðlabanka Evrópu eru um 2%, en ekk 7,75% eins og hér á landi. EF Aðild hefði engin áhrif á vexti á Íslandi, hefur vextir ekki átt að hækka núna hjá öllum !!!

EN er hægt að gera þetta án þess að ganga í ESB ? Það hefur ekki ennþá tekist eftir rúmlega 100 ára tilraunir til þess. Jónas Haraldz, fyrrum bankastjóri Landsbankans, benti á hvernig örgjaldmiðlar eins og krónan, haga sér og hvað það kostar þjóðina að vera með svoleiðis.

Fyrir utan beinan kostnað, í formi hárra vaxta, er gríðarlegur óbeinn kostnaður. Það er vegna þess, að gjaldmiðill á að "virka með tilteknum hætti", sem krónan er ekki og hefur aldrei verið að gera ! Það er dálítið langt mál að fara út í alla þá þætti.

Lét gervigreindina veiða þetta upp fyrir mig, en Jónas var einn virtasti hagfræðingur landsins á sínum tíma: "Á efri árum varð Jónas sífellt gagnrýnni á stöðu íslensku krónunnar sem sjálfstæðs gjaldmiðils. Hann taldi að smæð íslenska hagkerfisins gerði krónuna viðkvæma fyrir sveiflum og að Ísland ætti að taka þátt í stærra myntsamstarfi. Í fyrirlestrum og viðtölum lagði hann áherslu á að Ísland þyrfti að tengjast sterkari gjaldmiðli og studdi síðar aðild að Evrópusambandinu og upptöku evru." Þess má geta að Jónas var sjálfstæðismaður, en yfirgnæfandi meirihluti hægrimanna í Evrópu eru mjög fylgjandi ESB... nema í UK og Íslandi (Sjálfstæðisflokkur - Viðreisn fylgjandi).

Þess má geta að gerðar hafa verið fjölda margar tilraunir til að vera með "fast gengi". Lengi bundið við dollar. Það hefur aldrei gengið. Gengið var þá fellt reglulega...

EN við verðum auðvitað að sjá hvað er í boði. Nokkuð ljóst að fólk er ekki að fara að samþykkja samning, sem felur í sér afsal á stjórn fiskveiða við landið ! Þó að við ráðum þar raunar litlu núna. 20 fjölskyldur á Íslandi eiga nær allan kvóta og stóran hluta af öðrum rekstri á Íslandi.

„Þau skuldugri og tekjulægri eru ekki helstu orsakavaldar verðbólgunnar, heldur frekar hin tekjuhærri og eignameiri, sem hafa meira umleikis,“ skrifar Stefán Ólafsson.
Lesa: https://hmld.in/FGwL

06/05/2026

🍗Hvað ætlið þið að hafa í kvöldmat?
Í nýrri skýrslu Hagfræðistofnunnar kemur fram að matarverð í Finnlandi og Svíþjóð lækkaði um 25 - 30% eftir að löndin gengu í ESB. Í Noregi og á Íslandi hækkaði matvöruverð á sama tíma, eða lækkaði mun minna.

01/05/2026

Til hvers að úthýsa bókhaldi, skatta- og launavinnslum ?

Það sem vinnst er m.a.:

Þú ert með bókhalds- og skattasérfræðing á þínum snærum, sem þú getur alltaf leitað til og veit nánast allt.

Kostnaður er oftast mun lægri en af því að ráða starfsmann, nema fyrirtækið sé þeim mun stærra.

Þú þarf ekki að fylgjast með breytingum á skatta- og launaumhverfi fyrirtækisins. Þú ert með mann í því.

Þægilegt að vita að alltaf sé allt í 100% lagi hjá þér.

Hafðu samband í [email protected] eða í síma 7725533.

16/04/2026

Það er rétt að benda á að að við getum aðstoðað þig við að færa bókhaldið sjálf /ur. Komið á staðinn eða leiðbeint í gegnum tölvupóst og síma. Kostar ekki mikið. Þannig að ef þú vilt færa en treystir þér ekki alveg til þess, er um að gera að hafa samband. Mikil reynsla og þekking til staðar. Og þekking á skattalögum o.fl.

Þetta er m.a. hægt að gera með því, að þú færir það sem þú treystir þér til en setur fylgiskjölin sem þú ræður illa við fremst í möppuna, og svo kem ég og aðstoða. Nú eða tengist tölvunni þinni, ef það hentar. Ég kann ekki á öll bókhaldskerfi heimsins, en vandinn sem menn eru að fást við, er yfirleitt óháður kerfinu sem slíku. Ég mundi því bara afrita bókhaldslyklana og þá er ég góður... Ég hef raunar unnið á ca 10-12 mismunandi bókahaldskerfi og slatta af launakerfum.

Sama sagan með launin. Þar get ég aðstoðað. Komið í fyrstu skiptin á staðinn og svo leiðbeint með öðrum aðferðum.

Já.  Bara eina ferðina enn:  Það kosta helmingi minna að aka til Akureyrar á rafbíl, en dísel, bensín eða tengi twin.  H...
16/04/2026

Já. Bara eina ferðina enn: Það kosta helmingi minna að aka til Akureyrar á rafbíl, en dísel, bensín eða tengi twin. Helmingi minna... Sem sagt: Ókeypis gisting á Akureyri fyrir mig, en ekki þig :)

Þá erum við að tala um það sem heitir "beinn breytilegur kostnaður" eða líka viðbótar kostnaður. Þegar Jón borgar 25000 fyrir langferð er ég að borga a.m.k. helmingi minna.

Þess vegna skiptir það máli fyrir velferð fólks, að það komist leiðar sinnar á rafmagni. Sérstaklega mikilvægt fyrir fólk sem býr úti á landi.

Síðasta ríkisstjórn setti 1 miljarð í bílaleigur... til að rafbílavæða. Þó ekki væru til hleðslustöðvar. Pínulítið galið og virkaði eðlilega alls ekki. Góð regla: Hugsa fyrst og framkvæma síðan.

31/03/2026

Mörgum svíða hækkanir og bensíni og dísel. Og vilja gjarnan fara sömu leið og Spánverjar og niðurgreiða. Tvö vandamál:

Spánverjar eru að niðurgreiða, húsh*tun og rafmagn, aðallega. Ég held að þeir séu ekkert voðalega áhugasamir um að nirðugreiða bensín.

Svo er það hitt. Hvers vegna eru menn að skakklappast um á bensíni ? Rafmagnsbílar eru ca helmingi ódýrari í rekstri. Mun skemmtilegri í akstri og áreiðanlegri.

Góðir notaðir rafbílar frá ca 1.200þ og splunku nýr MG4 3.380þ.

Persónulega er ég að skvera upp jeppa sem við eigum, til að selja. Og er því 100% hættur að kaupa bensín/dísel. Og á aldrei eftir að gera aftur.

Þessir stjórna því sjálfir hvað þeir borga mikla skatta.  Það er gert í gegnum erlend félög.  Fiskurinn seldur til skúff...
25/03/2026

Þessir stjórna því sjálfir hvað þeir borga mikla skatta. Það er gert í gegnum erlend félög. Fiskurinn seldur til skúffufélaga, í hagstæðu skattaumhverfi.

Eitthvað sem venjulegum atvinnurekendum, stendur ekki til boða. Sjá tölvupósta þeirra félaga. Þeir lækka líka greiðslur til sjómanna, með svona "hagræðingar aðgerðum".

Einnig voru samþykkt stjórnarlaun fyrir árið 2026.

15/03/2026

Ég er oft spurður af viðskiptavinum hvað þeir eigi að gera, til að þurfa ekki að vinna svona langan vinnudag og hafa það örlítið betra?

Það eru aðallega tvö ráð, sem oftast koma upp í hugann.

1. Ekki taka skammtímalán... nema þú sért að gera eitthvað arðbært við peninginn. Og engan yfirdrátt. Fáðu lán hjá bankanum þínum og geiddu þetta upp, í eitt skipti fyrir öll. Vextir af skammtímaskuldum heimila eru gríðarlega háir, eða frá 12-17%. Sem er bara rugl... Raðgreiðslur og svo ekki sé nú talað um yfirdrátt, er algjör bömmer. Og allt hitt sem er í boði. Kaupa í dag og borga seinna.

2. Ef þú þarft bíl: Vertu á rafmagnsbíl. Það er hægt að fá mjög góða notaða rafmagnsbíla frá 1.3 miljónir og nýja frá 3.4. Rekstur rafmagnsbíls kostar þig þetta 300-500.000 minna (peningar eftir skatt), eftir því hvað þú keyrir mikið. Og þetta eru miklu skemmtilegri bílar... líka ódýrari týpurnar. Svo getur þú prufað bíllausan lífstíl... í nokkra mánuði og séð hvernig það gengur (mánaðarkort kostr um 11 þús). Það er minna mál en þú heldur, eftir að þú ert kominn upp á lagið með það. Það þarf að læra á appið og pínu að hugsa :) Það eina er að þú þarft að fara oftar í Bónus/Krónuna og kaupa minna í einu. Og finna strætó, sem stoppar við svoleiðis. Fullt af vögnum sem stoppa við Kringluna. En þetta er að sumu leiti betri lífsstíll. Ég nota mikið strætó, þó ég hafi alltaf átt bíl, frá því ég var mjög ungur.

Og svo má auðvitað setja upp sparnaðarplön í samráði við bankann þinn. En í grunninn borgar sig að gera þetta tvennt hér að ofan. Og byrja strax.

14/03/2026

Þó að þú sért ekki búinn að skila framtalinu þínu, þá er ekki öll nótt úti enn. Við erum með frest fyrir þig til 15.04.2026. Hafðu samband í [email protected] eða í síma 7725533. Leysum öll verkefni hratt og vel og á skikkanlegum verðum.

Það hefur mikið verið rætt um vexti á Íslandi, undanfarið.  Meðfylgjandi er mynd sem sýnir stöðuna.  Hærri vextir, draga...
12/03/2026

Það hefur mikið verið rætt um vexti á Íslandi, undanfarið. Meðfylgjandi er mynd sem sýnir stöðuna. Hærri vextir, draga úr eftirspurn eftir húsnæði, til skemmri tíma... EN eftirspurnin mótast hins vegar af annar vegar fæðingartíðni og hins vegar Aðfluttir mínus brottfluttir. Þörfin hverfur ekki, heldur erum við að ýta snjóbolta upp brekku, þessa stundina. Spurning hvað boltinn verður orðinn stór, þegar hann svo húrrar niður yfir okkur. En ekki gæfulegt til lengri tíma. Sjáið þarna vextina í Færeyjum... þeir eru í raun með B-Evru, eins og danir og svíar.

Address

Blöndubakki 13
Reykjavík
IS109

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when INext posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to INext:

Share

Category