11/03/2026
🧊 Fróðleiksmoli! 🧊 (fengið að láni frá Skattinum)
Dettum aðeins niður á nokkrum molum um verktakatekjur.
📌Verktakagreiðslur eru í flestum tilfellum ekki forskráðar á tekjusíðu framtalsins. Gera má grein fyrir þeim og kostnaði á fylgiskjali með framtalinu. Mismunandi er eftir fjárhæð hvaða fylgiskjal skal velja.
👉 RSK 4.10 fyrir verktakagreiðslur allt að 2 milljónum
👉 RSK 4.11 fyrir verktakagreiðslur yfir tveim milljónum, en undir 30m.
⚠ Ef þær eru forskráðar í kafla 2.3 en þú vilt gera rekstrarskýrslu má ekki gleyma að núlla forskráðu upplýsingarnar út af tekjusíðunni.
📊🗄 Kostnaður til frádráttar þarf að vera tilkominn vegna verktakastarfseminnar og tengjast henni beint. Á bak við allan kostnað þurfa að liggja bókhaldsgögn. Bókhaldi er ekki skilað inn með framtalinu.
🚗 Ef draga á kostnað frá vegna aksturs vegna bifreiðar sem einnig er til persónulegra nota þarf að liggja fyrir heildarkostnaður við rekstur bifreiðarinnar skv. fylgiskjali 4.03. Frádráttur færist í sama hlutfalli og notkun bifreiðar í þágu starfseminnar.
❌Villan reitir 5990 = 6990 + 7000. Ef hún kemur upp er rétt að athuga hvort búið sé að fylla inn allar fjárhæðir í kaflana að ofan. Ef svo er og allt annað þrýtur má skrá mismuninn í reit 6383 í +/- til afstemmingar.
👩💼👨💻Ef eitthvað vefst fyrir þér þá má alltaf hringja og fá aðstoð hjá Skattinum. Þau veita leiðbeiningar, en athugið að þau meiga ekki veita ráðgjöf eða gera rekstrarskýrslu fyrir fólk. Ef reksturinn er flókinn og umfangsmikill gæti verið tilefni til að fá fagaðila til aðstoðar.