APaL ehf

APaL ehf Endurskoðun, bókhald og ráðgjöf APaL ehf. býður uppá víðtæka þjónustu til fyrirtækja og einstaklinga. ApaL ehf. var stofnað 9.

Starfsmenn félagsins hafa mikla reynslu og leggja metnaði sinn í að veita viðskiptavinum sem besta og faglegasta þjónustu. veitir meðal annars eftirfarandi þjónustu.

• Endurskoðun
• Ársreikningagerð og gerð árshlutareikninga
• Bókhaldsþjónustu, virðisaukaskattsskil og launavinnslu
• Ráðgjöf á sviði reikningshalds og fjármála
• Skattskil fyrirtækja og einstaklinga ásamt skattaráðgjöf
• Áætlanagerð

og ýmsar fjármálagreiningar
• Við stofnun, breytingar, samruna og slit fyrirtækja
• Ráðgjöf og margt fleira sem komið getur upp við rekstur fyrirtækja. mars 2007 af Sigríði Ármannsdóttur löggiltum endurskoðanda. Sigríður er félagsmaður í Félagi löggiltra endurskoðenda og í Félagi kvenna í endurskoðun. fellur undir gæðareglur Félags löggiltra endurskoðenda. Þær reglur byggja á því að félagsmenn sem bera ábyrgð á endurskoðunarverkefnum sæta reglulegu gæðaeftirliti að hálfu Endurskoðunarráðs. Endurmenntun er ríkur þáttur í starfsemi félagsins. Starfsmenn félagsins sækja reglulega námskeið í skattskilum, reikningsskilum, endurskoðun og fleiru sem tengist starfinu. Samkvæmt lögum ber löggiltum endurskoðendum að endurmennta sig með reglubundnum hætti og er því fylgt eftir að hálfu Félags löggiltra endurskoðenda.

12/03/2026

Elsku vinir.

Frestur til að skila skattframtali 2026 er til 13. mars.

Gott er að nýta kvöldið í að klára fylla út þær upplýsingar sem gætu vantað og eiga þar með kósý föstudagskvöld á morgun 😊

Kveðja APaL,
Kristjana, Anna, Sólbjörg og Sirrý

24/12/2025
18/12/2025

Við viljum vekja athygli á þeirri ákvörðun Seðlabankans fyrr í þessum mánuði um að gamlársdagur verði framvegis ekki bankadagur. Tilkynningu Seðlabankans má lesa hér.
Þessi ákvörðun Seðlabankans hefur eftir atvikum áhrif á reikningsskil félaga enda lýkur reikningsári flestra félaga þann 31. desember og hvetjum við ykkur því til að upplýsa viðskiptamenn ykkar um málið þannig að þeir geti gripið til ráðstafana eftir því sem ástæða er til. Í tilkynningu Seðlabankans segir: „Ljúka þarf greiðslum sem eiga að tilheyra árinu 2025 eigi síðar en hinn 30. desember nk. Kröfur sem þurfa að greiðast á árinu 2025 þurfa jafnframt að hafa eindaga eigi síðar en þriðjudaginn 30. desember. Allar færslur gerðar 31. desember 2025 verða bókaðar 2. janúar 2026.“
Þá má í þessu sambandi benda á þessa tilkynningu frá Lífeyrissjóði Verslunarmanna þar sem kemur fram að iðgjaldageiðslur þurfi að berast í síðasta lagi þriðjudaginnn 30. desember, síðasta bankadag ársins.

07/03/2025

Elsku vinir.
Nú er að koma að árlegum framtalsskilum.
Vefur RSK opnaði 1. mars og því er upplagt að nýta nokkrar mínútur til bæta við þeim upplýsingum sem vantar og síðan samþykkja skattframtalið. Frestur til að skila er til 14. mars .

Kveðja APaL, Sirrý, Kristjana og Anna

28/06/2024

Kæru vinir
Á sunnudaginn, 30. Júní er síðasti dagur til að hafa áhrif á ráðstöfun sérstaks vaxtastuðnings, sjá inn á rsk.is

Kæru vinirOkkar bestu óskir um gleðilegt nýtt ár, þökkum ánægjulegar stundir á liðnum árum.Bestu kveðjurSirrý, Kristjana...
31/12/2023

Kæru vinir

Okkar bestu óskir um gleðilegt nýtt ár, þökkum ánægjulegar stundir á liðnum árum.

Bestu kveðjur
Sirrý, Kristjana og Anna

05/12/2023

Við viljum vekja athygli á skattmati vegna tekna manna tekjuárið 2023.
https://www.skatturinn.is/media/2023/rsk_0601_2_2023.is.pdf

„Peningagjafir launagreiðanda til starfsmanna teljast alltaf til skattskyldra tekna viðtakanda, hvort sem gjöfin er í beinhörðum peningum, innleggi á bankareikninga eða afhendingu á bankakorti.“ Þetta þýðir að ekki má gefa starfsmönnum jólagjafir í formi bankakorta án þess að greiddur sé af því tekjuskattur. Þetta á samt sem áður ekki við um gjafakort í einstakar verslanir, verslanamiðstöðvar eða tiltekna þjónustu, s.s. hótelgisting.

Einnig kemur fram í skattmatinu að „Ekki skal telja til tekna hlunnindi og fríðindi sem felast í ýmsum viðurgjörningi við starfsmenn eins og t.d. árshátíð, starfsmannaferðum, jólagleði og sambærilegum samkomum og viðburðum sem og glaðning, t.d. í kringum hátíðir, enda sé að jafnaði um að ræða upplyftingu og góðgerðir sem standi öllum starfsmönnum launagreiðandans til boða og árlegur kostnaður af þeim nemi ekki hærri fjárhæð en 163.000 kr. á hvern starfsmann. Hlunnindi og fríðindi af umræddum toga umfram 163.000 kr. skulu teljast starfsmanni til tekna, hvernig sem fyrirkomulagi á greiðslum launagreiðanda er háttað. Sömu reglur gilda um framlög launagreiðanda til starfsmannafélaga sem nýtt eru til greiðslu á sams konar kostnaði og að framan greinir.“

Með kveðju
Sirrý, Kristjana og Anna

Frestur til að framlengja ráðstöfun inn á lán.Almenn heimild til að nýta séreignarsparnað vegna kaupa á íbúðarhúsnæði ti...
30/06/2023

Frestur til að framlengja ráðstöfun inn á lán.

Almenn heimild til að nýta séreignarsparnað vegna kaupa á íbúðarhúsnæði til eigin nota eða til ráðstöfunar upp í höfuðstól láns sem tekið var vegna kaupanna hefur verið framlengd til og með 31. desember 2024.

Umsækjendur með virka ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á lán geta nú óskað eftir því að ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á lán haldi áfram.

Þetta er gert með því að skrá sig inn á www.leidretting.is og óska eftir að gildistími ráðstöfunar sé framlengdur.

Ef gildistími umsókna er ekki framlengdur falla umsóknir úr gildi frá og með 1. júlí 2023 og engar frekari greiðslur berast inn á lán.

Frestur til að samþykkja áframhaldandi ráðstöfun inn á lán er til og með 30. september 2023. Eftir það gilda umsóknir aðeins frá þeim mánuði þegar þær berast.

28/02/2023

Elsku vinir.
Nú er að koma að árlegum framtalsskilum.
Vefur RSK opnar 1. mars (næsta miðvikudag) og því er upplagt að nýta nokkrar mínútur til bæta við þeim upplýsingum sem vantar og síðan samþykkja skattframtalið.
Kveðja APaL, Sirrý, Kristjana og Anna

Address

Dalshraun 5
Hafnarfjörður
220

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when APaL ehf posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to APaL ehf:

Share