DH bókhald

DH bókhald Persónleg bókhaldsþjónusta. Fyrirtækjaráðgjöf, skattskil, stofnun fyrirtækja, framtöl og ársreikningar og almenn fyrirtækjaráðgjöf.

LokunarstyrkirFrumskilyrði1. Umsækjandi þarf að bera ótakmarkaða skattskildu hér á landi. – Með ótakmarkaðri skattskyldu...
03/12/2020

Lokunarstyrkir
Frumskilyrði
1. Umsækjandi þarf að bera ótakmarkaða skattskildu hér á landi. – Með ótakmarkaðri skattskyldu er átt við að viðkomandi einstaklingur eða lögaðili sé skyldugur að greiða tekjuskatt af öllum tekjum sínum hér á landi, hvar sem þeirra er aflað. Þetta þýðir að óskattskyldir aðilar, eins og t.d. íþróttafélög, líknafélög ofl. Eiga ekki rétt á lokunarstyrk.
2. Atvinnurekstur eða sjálfstæð starfsemi. – Þeir einir geta sótt um lokunarstyrk/viðbótarstyrk sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi. Með því er átt við starfsemi aðila sem greiðir laun samkvæmt staðgreiðslulögum, og er skráður á launagreiðendaskrá, svo og á virðisaukaskattskrá þegar það á við.
Nánari skilyrði
1. Skylt að stöðva starfsemi. -Skilyrði að rekstraraðila hafi verið skylt að loka samkomustað samkvæmt auglýsingu heilbrigðisráðherra nr. 243/2020, eða að láta af starfsemi eða þjónustu vegna sömu auglýsingu á grundvelli sóttvarnarlaga.
2. Tekjufall – skilyrði er að tekjur rekstraraðila hafi verið a.m.k. 75% lægri í apríl 2020 en í apríl 2019. Ef rekstraraðili hóf störf eftir apríl 2019 er notuð meðaltalsregla til að finna viðmiðunarupphæð.
3. Tekjur á rekstrarárinu 2019. – Skilyrði er að tekjur rekstraraðila á rekstrarárinu 2019 hafi numið a.m.k. 4,2 milljónum kr. Með tekjum í þessu sambandi er átti við allar skattskyldar tekjur í rekstrinum að frátöldum hagnað af sölu rekstrareigna.
4. Ekki í vanskilum með opinbergjöld og gögnum skilað. – Skilyrði er að rekstraraðili sé ekki í vanskilum með opinbergjöld, skatta og skattasektir sem komnar voru á eindaga fyrir lok árs 2019. Það telst til vanskila í þessu sambandi ef gjöld og skattar sem greiða átti á árinu 2019 voru ógreidd í lok árs þótt gerð hafi verið greiðsluáætlun eða samningur um greiðslu eftir þann tíma. Rekstraraðili veriður einnig að hafa skila skattaframtali og öðrum skýrslum og gögnum á tilskildum tíma sl. þrjú ár áður en umsókn um styrk barst eða síðan starfsemi hófst, sem og ársreikningum eftir því sem við á og upplýst um raunverulega eigendur félags. Álagðir skattar og gjöld mega ekki hafa verið byggð á áætlunum þ.m.t. staðgreiðsla og virðisaukaskattur á árinu 2020.
5. Ekki gjaldþrotaskipti eða slit.- Skilyrði að rekstraraðili hafi ekki verið tekinn til slita eða bú hans til gjaldþrotaskipta.
Fjárhæð lokunarstyrks skal vera jafnhá rekstrarkostnaði rekstraraðila á tímabilinu 24. mars til og með 3. maí 2020, þó aldrei hærri en 800.000 kr. á hvern launamann sem starfaði hjá rekstraraðila í febrúar 2020, og að hámarki 2,4 milljónir kr. á hvern rekstraraðila.
Fjárhæð viðbótarlokunarstyrks hjá sundlaugum skal vera jafnhá rekstrarkostnaði rekstraraðila á tímabilinu 4. maí til og með 17. maí 2020, þó aldrei hærri en 270 þús. kr. á hvern launamann sem starfaði hjá rekstraraðila í febrúar 2020, þó að hámarki 810 þús. kr. á hvern rekstraraðila.
Fjárhæð viðbótarlokunarstyrks hjá skemmtistöðum, krám, spilasölum og líkamsræktarstöðvum skal vera jafnhá rekstrarkostnaði rekstraraðila á tímabilinu 4. maí til og með 24. maí 2020, þó aldrei hærri en 400 þús. kr. á hvern launamann sem starfaði hjá rekstraraðila í febrúar 2020, þó að hámarki 1,2 millj. kr. á hvern rekstraraðila.
Hægt er að fylla út umsóknir á island.is eða hafi eitthvað af nánari skilyrðum ekki verið uppfyllt í vor en er það núna er hægt að senda beiðni á [email protected] en eftir farandi þarf að koma fram í umsókninni
• Fjöldi starfsmanna í febrúar 2020
Upplýsingar um rekstrartekjur og kostnað (án virðisaukaskatts ef aðili er í virðisaukaskattskyldri starfsemi).
• Allar rekstrartekjur ársins 2019
• Allar rekstrartekjur í apríl 2019
• Allar rekstrartekjur í apríl 2020
• Allan rekstrarkostnað sem féll til á tímabilinu 24. mars 2020 til og með 3. maí 2020, þ.e.
o Laun
o Önnur launatengd gjöld
o Rekstrarkostnaður sem má innskatta
o Rekstrarkostnaður sem má ekki innskatta
(Ef greiddur var kostnaður fyrir allt árið á tímabilinu þá þarf að hlutfalla hann).
• Tegund starfsemi.

25/11/2020
Gaman gaman í dag er gjalddagi tryggingagjalds Tryggingargjald er skattur sem launagreiðendum ber að greiða af launavelt...
16/11/2020

Gaman gaman í dag er gjalddagi tryggingagjalds
Tryggingargjald er skattur sem launagreiðendum ber að greiða af launaveltu starfsmanna sinna (laun+ mótframlag í líf) . Fyrir einstaklinga með rekstur myndast gjaldstofninn af reiknuðu endurgjaldi + mótframlagi í lífeyrissjóð. Tryggingagjald er innheimt í staðgreiðslu og er það greitt um leið og tekjuskatti launamanna þetta er að jafnaði kallað staðgreiðsla og er á gjalddaga 15. Hvers mánaðar fyrir liðin mánuð. T.d. í dag er 16. Nóv. fyrsti virkur dagur eftir 15. og því skil fyrir okt. í dag.
Hlutfallið ákveði af alþingi hverju sinni og er í ár 6,35% og skiptist það á eftirfarandi hátt:
4,90 % Tryggingargjald- t.d. til jöfnunar á örorkubyrði lífeyrissjóða, Fæðingaorlofssjóður, TR til að fjármagna að hluta lífeyris- og slysatryggingar almannatrygginga.
1,35 % atvinnutryggingagjald – Rennur til atvinnuleysistryggingasjóðs
0,05% Gjald í ábyrgðasjóð launa – Greiðir okkur laun ef við eigum inni laun við gjaldþrot félaga
0,05% Markaðsgjald – Rennur til reksturs íslandsstofu.
Heimildir skattur.is og stjórnaráð.is

Address

Básahrauni 29
Þorlákshöfn
815

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when DH bókhald posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to DH bókhald:

Share